Álalækur 18, 800 Selfoss
49.600.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
81 m2
49.600.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2019
Brunabótamat
44.500.000
Fasteignamat
46.300.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Álalækur 18, Nýleg þriggja herbergja 81,3 fm íbúð með sérinngangi á efri hæð í fjórbýlishúsi.
Um er að ræða snyrtilegt forsteypt einingarhús byggt 2019 á tveimur hæðum með 4 íbúðum.  Góðar suðursvalir með útsýni, út frá stofu.    Að innan skiptist íbúðin í forstofu, eldhús og stofu, tvö svefnherbergi baðherbergi.


Nánari lýsing íbúðar. Físalögð opin forstofa með fataskáp. Gangur. Opið rými, eldhús og stofa, hvít innrétting með dökkri borðplötu. Uppþvottavél fylgir. Harðparket á gólfi. Rennihurð út á rúmgóðar suðvestur svalir. 
Hjónaherbergi með harðparketi, fataskápur. Herbergi með harðparketi, fataskápur. Baðherbergi er flísalagt og þar er hvít innrétting með dökkri borðplötu og vaski, handklæðaofn og walk-in sturta sem er flísalögð. 
Þvottahús og geymsla er flísalögð, lítil innrétting með vaski. Lítil sameignargeymsla á jarðhæð. Malbikuð bílastæði.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.