Gráhella 35, 800 Selfoss
59.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
93 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
43.850.000
Fasteignamat
58.650.000

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala, kynna í einkasölu fjögurra herbergja snyrtilega endaíbúð í nýlegu raðhúsi við Gráhellu 35.  Íbúðin er 93,4 fm að stærð.  Að utan er húsið klætt með viðhaldsléttum Cembrit flísum og standandi viðarklæðningu, bárujárn á þaki, gluggar og hurðir er ál/tré.  Bílastæði er malbikað og skýli þar fyrir sorptunnur og lóð er þökulögð.  Húsið er byggt 2017.  Afhending 1.júní 2024

Forstofan er flísalögð og með fataskáp.  Eldhús, stofa og borðstofa í opnu og björtu rými. Snyrtileg eldhúsinnrétting með eyju.  Stofugluggar að gólfi og gengt út í garð úr stofu. 
Svefnherbergin eru þrjú, tvö góð barnaherbergi með fataskápum og rúmgott hjónaherbergi einnig með góðu skápaplássi.  Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og sturtu, glerveggur fyrir henni. Upphengt klósett og hvít innrétting með mörgum skúffum og hillum fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla með góðu hilluplássi og flísum á gólfi.  
Snyrtileg eign í alla staði.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                               
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.