Hafnarbrú 3, 820 Eyrarbakki
75.000.000 Kr.
Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
2 herb.
294 m2
75.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2002
Brunabótamat
107.600.000
Fasteignamat
41.800.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS Fasteignasala kynna í einkasölu: Snyrtilegt og bjart verslunar og/eða þjónustuhúsnæði á Eyrarbakka.  Húsið er yleininga hús frá Límtré, byggt árið 2002 sem áður hýsti Byggðarsafn Árnesinga.  Um er að ræða tvo þriðju hluta hússins sem telur gólfflöt 249,2 fm og milliloft 122,5 fm samtals 294,5 fm.  Einnig fylgir byggingaréttur á lóð.  Drenmöl er í bílaplani og lóð er þökulögð. 

Nánari lýsing:  Gott iðnaðarbil með hita í gólfum og þriggja fasa rafmagni.  Bilið er samkvæmt teikningu ca 10*12,3 = 123 fm.  Innkeyrsluhurð með hurðaopnara og innbyggðri gönguhurð.  Gólf er vélslípað.  Afstúkuð salernisaðstaða er innst í bílinu og gönguhurð út á baklóð.
Innangengt úr iðnaðarbilinu uppá milliloft sem telur átta aflokaðar geymslur sem allar eru í útleigu og leigusamningar þar á bak við.

Skrifstofuhluti.  Sá hluti telur eldhús með góri innréttingu, hol, rúmgott baðherbergi, þvottahús/vinnustofu, rúmgóðan og bjartan skrifstofusal og annað stórt gluggalaust herbergi.  Þessi hluti er með línoleum dúk á gólfum og hentar vel til ýmiskonar notkunnar. 

Spennandi eign á Eyrarbakka sem gæti hentað fyrir ýmiskonar starfsemi.
Engin VSK-kvöð.  

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]  
                                         
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.