Skólatún 12, 840 Laugarvatn
58.000.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
162 m2
58.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
39.250.000

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í sölu Skólatún 12 sem er nýtt fjögurra herbergja parhús í byggingu í nýju íbúðahverfi á Laugarvatni.  Húsið er á einni hæð, byggt úr timbri, klætt að utan með lituðu bárujárni, bárujárn á þaki. Húsið er einstaklega viðhaldslétt að utan. Húsið er 162,5 fm að stærð, þar af sambyggður bílskúr 46,0 fm. Húsið verður afhent  í maí 2024 tilbúið til innréttinga - full málað og raflögnum lokið. Öll inntaksgjöld eru greidd en einnig er hægt að fá húsið lengra komið samkvæmt nánara samkomulagi.  Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar.  Húsið er í göngufæri við skóla og alla þjónustu á Laugarvatni.    
Lóð er þökulögð með mulningi í plani og sorpgeymsla er úr forsteyptri einingu.


Nánari lýsing:
Þrjú góð svefnherbergi, anddyri, hol, baðherbergi, gesta salerni, þvottahús og stofa- borðstofa og eldhús í opnu rými og úr því er útgengt út í garð.  Úr þvottahúsi er innangengt í rúmgóðan bílskúr.
Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynt með svæðaskiptum gólfhita.  Lagnagrind er uppsett og tilbúin.  Rafmagn er tilbúið, þ.m.t. rofar og tenglar. Gluggar eru vandaðir og þakskyggni er bæði út frá stofu og við bílskúr. 
Virkilega spennandi eign á fínum stað í vaxandi bæjarfélagi.

Laugarvatn er fallegt þorp sem stendur við samnefnt vatn. Vel staðsett, í Bláskógabyggð á "Gullna hringnum".  Fagurt útsýni og stutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli o.fl.  Á Laugarvatni er leikskóli, grunnskóli og menntaskóli. Þar er verslun, veitingastaðir, Fontana o.fl. Margvísleg afþreying í ferðaþjónustu í næsta nágrenni. Ca 30 mín akstur á Selfoss og 50 mín í Mosfellsbæ.

Bókið skoðun - Sýni samdægurs.

Nánari skilalýsing, teikningar og upplýsingar á skrifstofu fasteignasölunnar.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                               
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.