Grænamörk 2a, 800 Selfoss
59.000.000 Kr.
Raðhús
2 herb.
79 m2
59.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2004
Brunabótamat
38.500.000
Fasteignamat
45.050.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu  Grænamörk 2a, íbúð 103, Selfossi. Íbúðin er laus við undirritun kaupsamnings.
Snyrtileg og vel um gengin 79,8 fm. íbúð í raðhúsi sem byggt var árið 2004.  Húsið er fyrir 50 ára og eldri. 
Flísalögð forstofa.
Flísalagt þvottahús innaf forstofu.
Flísalögð geymsla innaf þvottahúsi.
Eitt rúmgott  parketlagt svefnherbergi með stórum skápum og útgengi á baklóð.
Flísalagt baðherbergi m/eikarinnréttingu, handklæðaofni og upphengdu salerni.
Eldhús og stofa er opið í eitt.gólf parketlögð.  Eldhúsinnrétting er eikarinnrétting m/keramikhelluborði, Siemens tæki.

Yfirfelldar eikarinnihurðir. Innfeld halogenlýsing er í eldhúsi og stofu. Hiti er í gólfum og eru hitastýringar í hverju rými.
Húsið er klætt með álklæðingu.  Ál/tré gluggar. 

Malbikað bílaplan og hellulagðar stéttar við húsið og timbursólpallur framan við húsið.  Baklóð er hellulögð. 

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.