Traustatún 6, 840 Laugarvatn
32.830.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
56 m2
32.830.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
12.650.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. Traustatún 6.  Íbúð 103. 56,8 fm jarðhæð.  Nýtt og vandað staðsteypt og klætt, viðhaldslétt, fimm íbúða fjölbýlishús á fallegri útsýnislóð á Laugarvatni. 
Nánari gögn og skilalýsing hjá fasteignasala. 

HMS hefur staðfest að íbúðin uppfyllir skilyrði fyrir hlutdeildarláni skv reglum og úthlutunum sjóðsins.

Í húsinu eru 3 íbúðir á neðri hæð og tvær íbúðir á efri hæð. Allar með sérinngangi. Húsið skilast fullbúið að utan og innan með lóðarfrágangi, eftir um þrjá mánuði. Í dag eru íbúðirnar ca tilbúnar til innréttinga.

Íbúð 0103 56,8 fm, verð 32.830.000. Opin forstofa, eldhús og stofa í opnu rými, eitt svefnherbergi.  Baðherbergi/þvotthús. Sérverönd út frá stofu.

Vönduð gólfefni, innréttingar og tæki þ.m.t. innbyggður ísskápur og uppþvottavél.  Í húsinu er ofnakerfi. Ljós verða í öllum rýmum. Nánar í skilalýsingu.
Sameiginlegt inntaksrými/geymsla á jarðhæð.

Laugarvatn er fallegt þorp sem stendur við samnefnt vatn. Vel staðsett, í Bláskógabyggð á "Gullna hringnum".  Fagurt útsýni og stutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands s.s. Gullfoss, Geysi, Þingvelli o.fl.  Á Laugarvatni er leikskóli, grunnskóli og menntaskóli. Þar er verslun, veitingastaðir, Fontana o.fl. Margvísleg afþreying í ferðaþjónustu í næsta nágrenni. Ca 30 mín akstur á Selfoss og 50 mín í Mosfellsbæ.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
5. Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, lagt á að lokinni lokaúttekt

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.