Hallkelshólar , 805 Selfoss
26.900.000 Kr.
Sumarhús
3 herb.
63 m2
26.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2005
Brunabótamat
35.800.000
Fasteignamat
31.000.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. Hallkelshólar lóð 78. Sumarhús 63,6 fm. Tvö góð svefnherbergi og rúmgott fjölskyldurými

Húsið var byggt 2005 og stendur á steyptum súlum. Það er með liggjandi bjálkaklæðningu. Gluggar og gler í góðu ástandi.
Sólpallur þarfnast endurbyggingar þar sem hann hefur sigið og gengið til. Klæðning á áveðurshliðum hefur látið á sjá.

Innra skipulag húss. Rúmgóð flísalögð forstofa og hol með fataskáp Tvö góð svefnherbergi. Flísalagt baðherbergi. sturta, tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús, borðstofa og stofa í opnu og björtu rými, Ágæt eikarinnrétting. Hurð úr stofu á sólpall. Plastparket á gólfi,
Að innan er eignin mjög snyrtileg. Rafmagnskynding.

Læst hlið er inn á svæðið.
Lóðin er gróin leigulóð 8000 fm. 40 ára lóðarleigusamningur frá 2021.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.