Grafhólar 17, 800 Selfoss
88.800.000 Kr.
Raðhús
4 herb.
182 m2
88.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
96.850.000
Fasteignamat
88.450.000

HÚS fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala kynna í einkasölu, Grafhóla 17 á Selfossi. Snyrtilegt miðju raðhús með bílskúr.

Um er að ræða 182,7 fm steinsteypt raðhús þar af er bílskúr 36,7  fm.
Að innan telur eignin forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, þvottahús, baðherbergi og gestasnyrtingu. Eikar parket er á öllum gólfum nema votrýmum þar er flísalagt. Eldhús og stofa er í opnu alrými þar sem útgengt er út á sólpall til suðurs. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með walk in sturtu, upphengdu salerni, eikar innréttingu með handlaug og opnanlegum glugga.
Bílskúr er rúmgóður með steyptu gólfi og góðri innkeyrsluhurð. Garður er gróinn og sólpallur til suðurs.

Nánari lýsing:

Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús: Er rúmgott í opnu alrými. Svört AXIS eldhús innrétting með góðu skápa plássi ásamt eldhúseyju.  Eikar parket er á gólfi.
Stofa: Er samliggjandi eldhúsi með eikar parketi á gólfi. Útgengt er útá sólpall til suðurs.
Baðherbergi: Er flíslagt í hólf og gólf með eikar innréttingu með handlaug. Upphengt salerni. Opin sturtuklefi með gleri og opnanlegur gluggi.
Gestasnyrting: Er inn af forstofu með flísum á gólfi, eikar innréttingu, upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Hjónaherbergi: Er með eikar parketi á gólfi og góðum fataskáp. Úr hjónaherbergi er úgengt útí bakgarð.
Svefnherbergi: Er með eikar parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi: Er með eikarparketi á gólfi og fataskáp.
Sjónvarpshol: Er í miðju hússins með eikar parketi á gólfi.
Þvottahús: Er rúmgott með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er innangengt inní bílskúr og einnig útgengt út í garð. Flísar á gólfi.

Þriggja fasa rafmagn er í bílskúr. Möl er í bílaplani.

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir aðstoðamaður fasteignasala, í síma 8466581, tölvupóstur [email protected]. og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali.

Góð staðsetning á Selfossi í vinsælu hverfi, stutt í leikskóla og skóla.


,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir" 

 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.