Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu Hæðarland 38, Selfossi.Um er að ræða nýja fullbúna 95,2 fm íbúð í raðhús byggðu árið 2023. Eignin er tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Möguleiki er á hlutdeildarláni HMS.Húsið er timburhús klætt að utan með litaðri álklæðningu. Litað bárujárn er á þaki. Þakkantur úr timbri og undirklæðning einnig. Gluggar og útihurðar ál/tré. Gólfhitalagnir með stýringum. Vandað harðparket og flísar á gólfum. Hvítar yfirfeldar innihurðar. Innfeld LED lýsing í loftum. Loftræstikerfi uppsett. Mulningur í bílaplani. Lóð grófjöfnuð. Forsteypt ruslatunnuskýli án hurða og loka.
Nánari lýsing:Forstofa: Flíslaögð forstofa
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi, með skáp, og parketi á gólfi.
Barnaherbergi: Tvö barnaherbergi, með skáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Rúmgott baðherbergi með opnum sturtuklefa með gleri, innéttingu og upphengdu salerni. Flísalagt gólf og veggir við sturtu.
Eldhús: Eldhús er hluti af opnu alrými. Snyrtileg eldhúsinnrétting með vönduðum tækjum, innfelld uppþvottavél og ísskápur.
Stofa: Björt stofa, í framhaldi af eldhúsi, þaðan er útgengt á fyrirhugaða verönd. Parket á gólfi.
Þvottahús: Flísalagt þar er innrétting.
Gólfefni 60x60 gráar flísar eru á gólfum í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi. Innrétting í eldhúsi er hvít og kemur frá IKEA, heimilistæki sem fylgja er ofn, helluborð,innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél. Innrétting á baði er hvít og kemur frá IKEA. Innrétting í þvottahúsi er hvít og kemur frá IKEA. Borðplata í eldhúsi er plastlögð og borðplata í þvottahúsi er plastlögð. Allir fataskápar eru hvítir og koma frá IKEA. Á baðherbergi eru veggir eru flísalagðir í L þar sem sturtusvæðið er, gólfsítt gler verður við sturtuna.
Hringið og bókið skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
5. Skipulagsgjald sem er 0,3% af brunabótamati sem leggst á eftir lokaúttekt byggingarfulltrúa.