HÚS Fasteignasala, Jens Magnús Jakobsson s: 8931984 og Snorri Sigurfinnsson lgf kynna í einkasölu Litlagerði 14, 108 Reykjavík. Glæsileg 3 herbergja íbúð á hæð í tvíbýlishúsi á flottum stað í Fossvoginum.
Bókið einkaskoðun hjá Jens Magnúsi í síma 8931984 eða [email protected]
Björt og falleg eign í grónu hverfi í hjarta borgarinnar. Eign sem hefur verið mikið endurnýjuð. Hiti er í bílaplani og í stétt fyrir framan húsið, einnig er lýsing í þakskyggni.
Komið er inn um sameiginlegan inngang og gengið er upp snyrtilegar tröppur. Þaðan er síðan gengið inn í íbúðina þar sem eldhús og borðstofa eru í sameiginlegu rými. Stofan er björt með útgengi á svalir. Úr holi/gangi er gengið inn í bæði svefnherbergin og á salernið.
Hol/gangur: Parket á gólfi.
Svefnherbergi: Parket á gólfum og fataskápar í báðum á hæðinni.
Baðherbergi: Flísar bæði á gólfi og veggjum, fín innrétting og sturtuklefi.
Eldhús/borðstofa: Snyrtileg hvít innrétting og parketi á gólfi.
Stofa: Stofan er björt og rúmgóð, parketlögð og útgengt út á svalir.
Þvottahús: Er í kjallara og er sameiginlegt með neðri hæð hússins. Sameiginleg dekkjageymsla er í kjallara.
Bílskúr: Skráður 32,4 fm með 16,9 fm garðskála bakvið.
Herbergi niðri: Skráð sem geymsla 11,2 fm, parket á gólfi og opnanlegur gluggi. Þetta herbergi gefur mikla möguleika.
Salerni er í kjallara með vaski og er sameiginlegt með neðri hæðinni.
Það helsta sem búið er að gera nýlega er :
- Nýtt rafmagn lagt í íbúðina 2018
- Ný eldhúsinnrétting 2018
- Ný gólfefni 2018
- Ný rafmagnstafla í kjallara 2020
- Skipt var um tjörudúk á þaki bílskúrs 2020
- Húsið múrað og málað 2021
- Þak málað 2021
- Allir gluggar á hæð teknir í gegn og skipt um gler þar sem þurfti 2021
Virkilega skemmtileg og fín eign á flottum stað sem vert er að skoða.
Góð bílastæði eru við húsið. Nánari upplýsingar og bókanir í skoðun er hjá Jens Magnús Jakobsson nemi í löggildingu s. 8931984 eða [email protected] og Snorri Sigurfinnsson lgf.
[email protected]Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, 0,4 % fyrir fyrstu kaupendur.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS Fsteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.