Mýrarland 8, 800 Selfoss
86.800.000 Kr.
Parhús
4 herb.
148 m2
86.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
72.250.000
Fasteignamat
74.800.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og Fasteignasalan Hús kynna í einkasölu. Mýrarland 8, Selfossi.
Fullbúið, bjart og nýlegt 148,9 fm parhús með bílskúr þar af er bílskúr 39,3 fm og er innangengt í hann. Húsið er byggt úr timbri árið 2018.  Að utan er það klætt með lituðu bárujárni.  Á þaki er bárujárn.  Mulningur í bílaplani, framan við hús og við enda hússins. 

Forstofa með skáp.
Eldhús er með hvítri, háglans innréttingu með dökkri borðplötu, góð eldhústæki, innfeldur ísskápur og uppþvottavél.
Rúmgóð stofa með útgengi á lóð.
Baðherbergi með baðkari, sturtu, með innbyggðum tækjum,  hvítri innréttingu, handklæðofni.  Útengt er á baklóð.
Þrjú svefnherbergi. Góður skápur í hjónaherbergi.
Hvítar yfirfeldar innihurðar.  Harðparket er á gólfum í alrými og herbergjum. Flísar eru á forstofu, baði og þvottahúsi.  Ljósar loftaþiljur.  Innfeld LED lýsing.  Epoxy er á gólfi í bílskúr.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.