TILBOÐ ÓSKAST.
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna. Mosabraut 11, sumarbústaðalóð, 5.710 fm eignarlóð.Heimilt að byggja allt að 300 fm á lóðinni.
Mosabraut tilheyrir Heiðarlöndum sem eru úr landi Galtalækjar II ofarlega í Landsveit. Stutt frá Leirubakka og Galtalækjaskógi. Aðkoma að Heiðarlöndum er til vesturs af Landvegi (vegur nr 26)
Beygt er af þjóðvegi 1 við Landvegamót til norðurs til að komast á Landveg.
Malbikað er að landinu.
Í vegi innan svæðis er rafmagn og sér kaldavatnsborhola er til staðar.
Heimilt er að byggja 3 hús á hverri lóð. Aðalhús getur verið allt að 200 fm. Gestahús getur verið allt að 60 fm og geymsla/gróðurhús getur verið allt að 35 fm
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s. 864-8090 eða
[email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.