Brekkuholt 7 a, 806 Selfoss
98.500.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
5 herb.
213 m2
98.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
97.650.000
Fasteignamat
68.800.000

Nýtt Parhús, Brekkuholt 7a sem stendur á útsýnislóð í nýju hverfi í Reykholti.  Húsið er á einni hæð,  klætt að utan með vandaðri viðhaldsléttri klæðningu og gluggar/hurðir eru ál/tré.  Járn er á þaki sem að stærstum hluta er einhalla en yfir bílskúrum er slétt þak.  Íbúðin er 182,5 fm og sambyggður bílskúr 31,3 fm, samtals 213,8 fm.  Metnaðarfullt verkefni þar sem frágangur er góður og vandað til efnisvals.  Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar. 

Húsið telur þrjú svefnherbergi og það fjórða er hjónasvíta og inn af henni er bæði fataherbergi og sér baðherbergi. Anddyri/hol, stofa- borðstofa og eldhús í opnu rými, annað baðherbergi, þvottahús og innangengt er í bílskúr þar sem líka er geymsla.
Upptekið loft er í öllu húsinu og hitalagnir eru steyptar í gólfplötu.  Fullkomið rafkerfi er í húsinu þar sem rofar og ljós eru snjallvædd (smart) en hægt er að stýra því með síma og stilla á marga vegu.  Gólfhitakerfi er einnig snjallvætt (smart) og hægt að stýra og stilla með síma.  Heimilistæki í eldhúsi eru mjög fullkomin og snjallvædd, sjá nánar:
- smart Electrolux ofn
- Siemens tvöfaldur ísskápur  https://www.siemens-home.bsh-group.com/uk/productlist/cooling/freestanding-fridges-and-freezers/freestanding-bottom-fridge-freezers/KF96NAXEAG#/Tabs=section-technical-overview/Togglebox=manuals/Togglebox=accessoriesOthers/
- Elica cooker helluborð með innbyggðum gufugleypi  https://www.elica.com/GB-en/hobs/extractor/nikolatesla-one-one-hp
- Smart Bosch uppþvottavél  https://www.bosch-home.co.uk/product-list/dishwashers/built-in-dishwashers/built-in-dishwashers-60cm-width/SMD6EDX57G#/Tabs=section-technical-overview/Togglebox=accessories/Togglebox=accessoriesOthers/Togglebox=manuals/

Á gólfum eru stórar vandaðar flísar en á herbergjum er harðparket.  Aðal baðherbergi hússins er flísalagt í hólf og gólf, óbein lýsing, sturta með glervegg og sjálfstandandi baðkar. Baðherbergi inn af hjónaherbergi er flísalagt og þar er sturta með glervegg, innrétting og wc. Rúmgott þvottahús. Eldhús með stórri sérsmíðaðri innréttingu, eyju og vönduðum heimilistækjum. Rúmgóð og björt stofa og rennihurð út á stóra ca 100 fm timburverönd með glæsilegu útsýni. Á sólpalli er heitur pottur og dekk pallsins er rásaður viður. Gólfhitakerfi hússins er með digital stýringum fyrir hvert rými sem einnig er hægt að stjórna með símum. Innfelld ledlýsing er í flestum rýmum hússins sem einnig er hægt að stjórna úr símum og m.a. skipta um lit o.fl. Upptekið loft er í öllu húsinu. Bílskúr er flísalagður, björt lýsing og rafstýrð innkeyrsluhurð. Næturlýsing er undir þakskeggi. Bílaplan skilast steypt með snjóbræðslukerfi og garður verður þökulagður þar sem ekki er sólpallur.
Um er að ræða virkilega vandaða íbúð að innan sem utan þar sem hönnun, útlit og notagildi fara saman og mynda eina flotta heild.

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                        
                                                        
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.