Suðurleið 28, 801 Selfoss
12.000.000 Kr.
Lóð/ Byggingarlóð
0 herb.
0 m2
12.000.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
0
Brunabótamat
0
Fasteignamat
10.150.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s: 862 1996 og Hús fasteignasala  kynna í einkasölu Suðurleið 28,  801 Selfoss  sem er 11.085 fm. eignarlóð í Tjarnabyggð í Árborg, milli Selfoss og Eyrarbakka. Lóðin er í um 40 mínutna akstri frá Reykjavík og í um 4 km fjarlægð frá Selfossi.

Möguleiki er að kaupa aðra lóð sem er samliggjandi Suðurleið 26 og er hún 10.392 fm 

Tjarnabyggð er skv. deiliskipulagi Búgarðabyggð.  Góður  kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þjónustu eins og þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Árborg og viðkomandi veitur munu sjá um allan rekstur svæðisins eins og snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur, tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn. Ljósleiðari er í lóðarmörkum.

Nánar um Tjarnabyggð:
Heimilt er að byggja allt að 1.500 fm húsnæði á jörðinni og þar af íbúðarhúsnæði allt að 1.000 fm. Samtals byggingarmagn útihúsa og íbúðarhúss skal þó ekki vera stærra en 1.500 fm samtals.
Svæðið er skipt upp í klasa og eru 5-6 lóðir í hverjum klasa. Á milli klasa eru reið- og göngustígar.
Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar.

Kjörið svæði til að byggja upp sinn sælureit í sveitinni en með alla helstu þjónustu innan seilingar.

 
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali  s. 862 1996  [email protected]  

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.