Fannborgartangi 18, 845 Flúðir
68.000.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
201 m2
68.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2024
Brunabótamat
0
Fasteignamat
4.290.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu nýbygginguna Fannborgartanga 18, Flúðum.
Um er að ræða einbýlishús sem er í byggingu.  Eignin er alls 201,2 fm þar af sambyggður bílskúr 40,8 fm.
Innra skipulag. 
Forstofa
Fjögur rúmgóð svefnherbergi.
Tvö baðherbergi.  Úr öðru baðherberginu er útgengt á lóð. 
Stofa og eldhús er opið í eitt.  Úr eldhúsi er útgengt út á lóð. Við útgengi þetta er þakskegg  sem er 12,7 fm 
Sjónvarpshol.
Bílskúr innamál  breidd 5,51m  x lengd 6,5m.  Innangengt er í bílskúr úr forstofu einnig er gönguhurð undir þakskeggi við inngang. 

Húsið afhendist á byggingarstiginu fullbúið að utan en fokhelt að innan skv. skilalýsingu byggingaraðila.  Möguleiki er að fá eignina afhenta lengra komna eftir nánara samkomulagi. Húsið er byggt úr timbri, klætt að utan með liggjandi báruáli og standandi timbur klæðning.  Þak er niðurtekið kraftsperruþak með 4° þakhalla. Ofan á sperrur kemur lekta, 18 mm þakkrossviður og að lokum 2 lög af bræddum þakpappa. Vindskeiðar eru úr lituðu áli og álrennur innfeldar. Útihurðir og gluggar eru ál-tré

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]   
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"  
     
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald og inntaksgjöld skv. gjaldskrá. 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.