Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu sumarhús við Gíslholtsvatn
Hagi lóð Breiðavík 14, Rangárþingi ytra. 1.200 fm eignarlóð í skipulögðu sumarbústaðahverfi við Gíslholtsvatn í HoltumÁ svæðinu er óskipt 4000 fermetra sameignarland, þar sem er vel tækjum búinn leikvöllur og tækjageymsla með aðgengi að Gíslholtsvatni, höfn fyrir smábáta og ból. .
Húsið er 61,7 fm Húsið er timburhús byggt árið 2008 og stendur það á timburstaurum. Að utan er húsið kætt með liggjandi timburklæðningu. Á þaki er bárujárn. Við húsið er stór timburverönd með heitum potti. Húsið er upphitað með hitaveitu frá OR. Gólfhitalagnir.
Tvö svefnherbergi auk manngengs svefnlofts. Stigi upp á milliloft er úr stofu. Stofa og eldhús er opið í eitt. Útgengt er á verönd úr stofu. Eldhúsinnrétting spónlögð með eik. Baðherbergi með innrétting og sturtu. Gólf er dúklagt á baðherbergi en önnur gólf eru parketlögð. Panill er í loftum. Upptekin loft m.a. í stofu, eldhúsi. Veggir eru klæddir að innan með hvítum MDF plötum með panil útliti.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected] ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.