Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteigna- og skipasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu fína stúdíoíbúð miðsvæðis á Selfossi. Húsið var byggt árið 2004 en nýlega voru byggðar við húsið geymslur sem og lyftuhús. Íbúðin er 32,5 fm að stærð og þar við bætist 2 fm geymsla, samtals 34,5 fm. Íbúðin er á efri hæð, næst ysta íbúðin á stigaganginum sem snýr út í Kirkjuveg.
Frábær fyrstu kaup! ********** Íbúðin er laus og tilbúin til afhendingar **********Nánari lýsing:
Í opnu rými eldhús, stofa og svefnrými. Forstofa með góðum fataskáp. Flísalagt baðherbergi með innréttingu, sturtuklefa og wc. Á gólfum eru ljósgráar flísar og íbúðin er ný máluð að innan. Á jarðhæð er sameign ásamt þvottahúsi.
Húsið er steinsteypt, múrað að utan með múrkerfi. Malbikað bílaplan er fyrir framan húsið og einnig að baka til.
Góð íbúð, á frábærum stað.
Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected]
Hringið og bókið skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.