Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:Snyrtilegt 208,8fm, 6herb. einbýlishús í Laugarási Bláskógabyggð. Pallur og heitur pottur - möguleiki á að fleiri herbergjum.Komið er inn í rúmgóða flísalagða
forstofu með stórum skáp fyrir yfirhafnir. Þá
gangur og svefnherbergin þar á vinstri hönd en inn til hægri er stofa og eldhús. Parket á öllum gólfum nema votrýmum.
Eldhúsið er flísalagt og með upprunalegum innréttingum og eyju með skúffum og stóru borði ofan á sem hægt er að sitja við. Ljós undir efri skápum.
Búr við hlið eldhúss.
Stofan rúmgóð og gengt út á pall með heitum potti í góðu skjóli.
Herbergin eru fimm, öll vel stór og fataskápar í þeim öllum. Möguleiki að fjölga herbergjum um eitt eða jafnvel tvö.
Baðherbergið er flísalagt, handlaug í innréttingu, stór sturtuklefi í horni, baðkar og klósett. Stórt
þvottahús með öðrum útidyrum og lúgu og stiga upp á geymsluloft sem nær yfir allt húsið.
Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir eru úr tré og bárujárn á þaki. Útsýni til Heklu, Langjökuls og víðar af lóðinni.
Tilvalið hús fyrir stóra fjölskyldu - en einnig hentugt til útleigu - tiltölulega einfalt að bæta við öðru salerni og einu eða tveimur herbergjum. Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.