Hagalækur 3, 800 Selfoss
108.900.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
187 m2
108.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
98.350.000
Fasteignamat
99.950.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu. Hagalækur 3. Gott og vandað nýlegt einbýlishús með bílskúr innst í botngötu, á jaðarlóð vestast á Selfossi. 

Húsið er byggt 2020 af Múr og mál. Hús 147,1 fm og bílskúr 40,2. Alls 187,3 fm. Timburhús með liggjandi lituðu bárujárni og standandi timburklæðningu. Ál/tré gluggar. Steypt ný stétt framan við hús og meðfram húsinu. Steypt verönd með skjólveggjum í suðurgarði. Heitur pottur, þökulögð lóð.

Innra skipulag. 
Flísalögð forstofa og forstofusalerni. Eldhús, stofa, borðstofa og sjónvarpshol, í opnu og björtu rými, harðparket á gólfi. Falleg eldhúsinnrétting með eyju. Gólfsíðir gluggar gera mikið fyrir rýmið sem er bjart og skemmtilegt. Rennihurð út á verönd. Sjónvarpsholið er á teikningu sem fjórða svefnherbergið en er opið rými í dag. Þrjú rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Harðparket á gólfi. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, stór innrétting og "walk inn" sturta. Hurð út á pall. Flísalagt þvottahús með stórri innréttingu. Bílskúr er fullfrágenginn. epoxý á gólfi, hurðaopnari. Fellistigi upp á ca 15 fm geymsluloft. 
Hiti í gólfi með stýringum og innbyggð ledlýsing í lofti.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið skoðun hjá fasteignasala

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.