Lágengi 27, 800 Selfoss
74.000.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
145 m2
74.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1980
Brunabótamat
70.050.000
Fasteignamat
66.800.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu  Lágengi 27, Selfossi. Vel staðsett, snyrtilegt steinsteypt raðhús með bílskúr
Snyrtilegt 102,6 fm. steinsteypt raðhús ásamt 28,0 fm sambyggðum bílskúr auk 14,5 fm sólstofu,  samtals 145,3 fm.  Húsið er byggt úr steinsteypu árið 1980.  Húsið er hraunað að hluta og hluta múrað. Bárujárn er á þaki. Að framanverðu er nýsteinsteypt innkeyrsla með hitalögnum.  Steinsteypt ruslatunnuskýli með hurðum og lokum.  Gróin og snyrtileg lóð, heitur pottur á baklóð. 

Flísalögð forstofa.
Flísalagt hol.  
Þvottahús er flísalagt þar er innrétting
Eldhús með hvítri/beyki innréttingu, flísar milli skápa,  korkur á gólfi.
Búr með hillum.
Þrjú parketlögð svefnherbergi öll með skápum. 
Baðherbergi er nýuppgert, flísalagt í hólf og gólf, þar er upphengt salerni, walk in sturta, innrétting, handklæðaofn og hiti í gólfi. 
Flísalögð stofa.  Úr stofu er útgengt út í sólstofu.
Sólstofan er flísalögð.  Sólstofan er á steyptum grunni, byggð úr timbri.  Nýlegt plexigler er í þaki sólstofu. 
Bílskúr er flísalagður þar er tréflekahurð. 

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]  

,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.