Móstekkur 8 - 202, 800 Selfoss
84.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
123 m2
84.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
59.500.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali ásamt HÚS fasteignasölu kynna í sölu nýja virkilega vandaða og flotta íbúð við Móstekk 8 (íbúð 202C).  Íbúðin er fullbúin og tilbúin til afhendingar.  Húsið er fjórar íbúðir, tvær í hvoru húsi og tengibygging á milli þar sem eru geymslur og svalir.  Hver íbúð er með sérinngang.  Staðsetning er í suð-vesturhluta bæjarins í göngufæri frá Stekkjarskóla.  Íbúðin er á efri hæð 123,9 fm ásamt geymslu. Einnig er sameign á jarðhæð tæknirými/hjólageymsla. Húsið er hannað af TEARK arkitektum þar sem fágað útlit, gæði og notagildi skapa eina heild. Lóðin umhverfis húsið er hönnuð af landslagsarkitektinum Hermanni Ólafssyni en á lóð fylgir hverri íbúð sér bílastæði þar sem gert er ráð fyrir hleðslustöð. Húsin eru staðsteypt, einangrað og klætt að utan með vandaðri ál utanhússklæðningu og á þaki, sem er einhalla, er soðinn tjörupappi.  Mikil lofthæð og stórir gluggar.

Íbúð C - merkt 202 efrihæð, verð 84.900.000.- Tilbúin til afhendingar við kaupsamning  ***** Bókið skoðun - sýni samdægurs *****

Nánari lýsing:

Rúmgóð forstofa með innbyggðum fataskáp, gangur með parketi á gólfi, þrjú svefnherbergi með parketi á gólfi öll með fataskápum. Rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, handklæðaofn, innrétting, speglaskápur og "walk inn" sturta með innbyggðum blöndunartækjum. Flísalagt þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð. Sérsmíðuð elhúsinnrétting frá Voké-III. Ljúflokur á öllum skúffum og skápum ásamt innbyggðri ledlýsingu sem er undir efri skápum í eldhúsi. Heimilistæki frá AEG.  Stofa, borðstofa og eldhús eru í opnu og björtu rými þar sem útgengt er út á svalir. Á svölum er skjólveggur og svalahandrið er polýhúðað stál.  

Svæðaskiptur gólfhiti með digital stýringum, harðparket frá og flísar á votrýmum. Gluggar eru vandaðir ál/tré frá IDEAL. Allir innveggir eru annarsvegar steyptir burðarveggir og hinsvegar hlaðnir milliveggjasteini úr léttsteypu. Í loftum er dúkaloft með innfelldri Led lýsingu en dúkurinn skapar góða hljóðvist í íbúðinni . Lóð, fullfrágengin, gras, gróður, leiktæki, hellulagðar/styptar stéttar og malbikað bílaplan með 27 bílastæðum en íbúðinni fylgir eitt sér stæði þar sem lagt hefur verið fyrir hleðslustöð sem tengist beint inn á rafmagnsmæli íbúðar. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla á jarðhæð.

Virkilega flott íbúð, í vönduðu húsi þar sem skipulag, frágangur, efnisval og innréttingar eru til fyrirmyndar.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 


"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                        
                                                        
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.