Baugalda 13, 850 Hella
65.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
136 m2
65.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2018
Brunabótamat
65.700.000
Fasteignamat
52.850.000

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu Baugöldu 13 sem er nýlegt 4ra herbergja endaraðhús í rólegu íbúðahverfi á Hellu. Húsið er á einni hæð, klætt að utan með svörtu bárujárni og bárujárn er á þaki. Næturlýsing að hluta í þakkanti og við inngang er gott bíslag. Húsið er er 136,6 fm að stærð, (íbúð 103,7 fm, bílskúr 32,9 fm samtals 136,6 fm). Stór sólpallur með skjólgirðingu, grasflöt og drenmöl í bílaplani. Hönnun hússins tekur m.a. mið af því að viðhald sé í lágmarki og innra skipulag sett upp með það að markmiði að nýta sem best stærð íbúðar.    ***** Afhending við kaupsamning *****

Nánari lýsing:
Húsið telur þrjú svefnherbergi, anddyri, stofu- borðstofu og eldhúsi í opnu rými, baðherbergi og þvottahúsi en úr því er innangengt í bílskúr.
Eldhúsinnrétting, með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, efri skápar dökkir að lit. Vönduð heimilistæki. Snyrtilegt og rúmgott baðherbergi með "walk inn" sturtu með glervegg, upphengdu wc, handklæðaofni, innréttingu og spegli með lýsingu. Þvottahús með innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnsluhæð. Bílskúrsgólf er vélslípað og innst í skúr er gönguhurð út á baklóð. 
Húsið er klætt að utan með svartri báru og járn er á þaki. Hitalagnir eru steyptar í gólfplötu og húsið því kynnt með svæðaskiptum gólfhita. Hvítar loftaþiljur með skuggafúu og innfelldri ledlýsingu. Lóð er þökulögð og drenmöl í bílaplani.  Stór sólpallur með skjólgirðingu. Útgengt er út á sólpallinn annars vegar úr stofu og hins vegar úr bílskúr.
Virkilega spennandi eign á fínum stað. 

******* Bókið einkaskoðun - sýni samdægurs ef þess er óskað *******

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       

                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.