Gráhella 52, 800 Selfoss
63.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
93 m2
63.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2017
Brunabótamat
49.600.000
Fasteignamat
58.600.000

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala, kynna í einkasölu fjögurra herbergja snyrtilega endaíbúð í nýlegu raðhúsi við Gráhellu 35.  Íbúðin er 93,4 fm að stærð.  Að utan er húsið klætt með viðhaldsléttum Cembrit flísum og standandi viðarklæðningu, bárujárn á þaki, gluggar og hurðir er ál/tré.  Bílastæði er malbikað og að auki einnig við gafl hússins þar sem t.d. er hægt að geyma hjólhýsi.  Stór vandaður sólpallur með skjólgirðingu ásamt vönduðum geymsluskúr.  Á bílaplani er skýli fyrir sorptunnur.  Húsið er byggt 2017.  Afhending í október 2024

Forstofan er flísalögð og með fataskáp.  Eldhús, stofa og borðstofa í opnu og björtu rými. Snyrtileg eldhúsinnrétting með eyju.  Stofugluggar að gólfi og gengt út í garð úr stofu. 
Svefnherbergin eru þrjú, tvö góð barnaherbergi með fataskápum og rúmgott hjónaherbergi einnig með góðu skápaplássi.  Baðherbergið er með flísalögðu gólfi og sturtu, glerveggur fyrir henni. Upphengt klósett og hvít innrétting með mörgum skúffum og hillum fyrir þvottavél og þurrkara. Geymsla með góðu hilluplássi og flísum á gólfi.    Ljósgráar parketflísar eru á flestum rýmum en á herbergjum er harðparket í sama lit.  Varmaskiptir er á neysluvatni og útikrana var bætt við á gafli hússins.  Sólpallur er ca 70 fm með skjólgirðingu og vinnu/geymsluskúr er vandaður og einangraður.
Snyrtileg eign í alla staði.

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected] 

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                               
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.