Ásavegur 10, 900 Vestmannaeyjar
79.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á þremur hæðum
7 herb.
233 m2
79.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
1971
Brunabótamat
87.550.000
Fasteignamat
58.800.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Ásaveg 10  í Vestmannaeyjum sem er  fallegt  7 herbergja einbýlishús á þremur hæðum í austurbænum.  Húsið er byggt úr steini árið 1971 og er 233,2 fm2 þar af er bílskúr 29,4 fm2.  Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð undanfarin ár, meðal annars er búið að skipta um klæðningu á húsinu, setja nýtt járn á þak og endurnýja hluta af gluggum.  Baðherbergi á hæð er nýlegt.  Á miðhæð er búið að endurnýja megnið af gólfefnum og setja nýja klæðningu í loft.  Nýleg gólfefni í herbergjum í risi. Sér inngangur er á neðstu hæð og auðvelt að útbúa sér íbúð til útleigu. Skjólsæll og góður garður.


BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing: 
Aðalhæð:
Forstofa: Flísar á gólfi, innaf forstofu er parketlagt rými með hirslum
Hol: Parket á gólfi, útgengt á pall
Stofa: parket á gólfi, nýleg klæðning í lofti og innfelld lýsing
Herbergi: Nýlegt parket á gólfi
Eldhús: Flísar á gólfi, viðarinnrétting, flísar á milli skápa

Efri hæð:
Herbergi: Parket á gólfi, skápur
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Snyrting: Flísar á gólfi, wc, nett innrétting,opnanlegur gluggi

Neðri hæð - sérinngangur bak við hús
Snyrting: Flísar í hólf og gólf, wc, nett innrétting, sturta
Herbergi: Parket á gólfi
Herbergi: Parket á gólfi
Snyrting: Inn af herbergi, flísar í hólf og gólf, wc, nett innrétting, sturta er fyrir utan herbergi
Þvottahús: Flísar á gólfi
Bílskúr: Flísar á gólfi, rafmagn, bílskúrshurðaopnari, heitt og kalt vatn



Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.


 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.