Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Strembugötu 22 sem er fallegt og vel skipulagt einbýlishús í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1956 og er 226,6 fm2 þar af er bílskúr 22,6 fm2 byggður 1967.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð í gegnum árin. Gluggar og járn á þaki var endurnýjað fyrir sirka 15 árum, einangrun ofan á allri þakplötu 6 " steinull. Eldhús var endurnýjað 2020 og gólf flotað á hæðinni. Allar lagnir hafa verið endurnýjaðar, vatnslagnir í eir eða álpex, allar frárennslislagnir í plasti, allar raflagnir hafa verið endurnýjaðar. Nýlegt parket í herbergjum. 4 rúmgóð svefnherbergi á hæðinni og miklir möguleikar í rými á neðri hæð. Góður og vel viðhaldin garður. Eignin fékk viðurkenningu sem snyrtilegasta eignin árið 2021 frá Rótarýklúbb Vestmannaeyja.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Nánari lýsing: Forstofa: Flotað gólf, hiti í gólfi, fatahengi, falleg tvöföld forstofuhurð
Eldhús: Flotað gólf, nýleg hvít háglans Ikea innrétting, nýleg tæki
Stofa/borðstofa: Flotað gólf, opið rými í eldhús
Baðherbergi: Steypt gólf, baðherbergi er tilbúið fyrir flísalögn, allar lagnir tilbúnar og allt tilbúið fyrir wc, sturtu og vask, ný blöndunartæki, innrétting og upphengt wc fylgir með.
Herbergi: parket á gólfi, skápur
Herbergi: parket á gólfi, skápur
Herbergi: parket á gólfi, skápur
Herbergi: parket á gólfi
Neðri hæð:Þvottahús: Flotað gólf, innrétting. Sér afmarkað rými fyrir sturtu og wc, útgengt á pall/ í garð
Geymsla: Flotað gólf, góðar hillur
Geymsla/mögulegt herbergi: Steypt gólf, rými sem hefur mikla möguleika, búið er að setja glugga
Bílskúr: Klára þarf að flota gólf í bílskúr. Rafmagn og heitt vatn, bílskúrshurð endurnýjuð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.