Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s: 862 1996 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu Suðurleið 28, 801 Selfoss sem er 11.085 fm. eignarlóð í Tjarnabyggð í Árborg, milli Selfoss og Eyrarbakka. Lóðin er í um 40 mínutna akstri frá Reykjavík og í um 4 km fjarlægð frá Selfossi.Möguleiki er að kaupa aðra lóð sem er samliggjandi Suðurleið 26 og er hún 10.392 fm Tjarnabyggð er skv. deiliskipulagi Búgarðabyggð. Góður kostur fyrir fólk sem vill búa í sveitinni og nýta sér alla þjónustu eins og þéttbýlið hefur upp á að bjóða. Árborg og viðkomandi veitur munu sjá um allan rekstur svæðisins eins og snjómokstur, sorphirðu, skólaakstur, tæmingu rotþróa, heitt og kalt vatn. Ljósleiðari er í lóðarmörkum.
Nánar um Tjarnabyggð:
Heimilt er að byggja allt að 1.500 fm húsnæði á jörðinni og þar af íbúðarhúsnæði allt að 1.000 fm. Samtals byggingarmagn útihúsa og íbúðarhúss skal þó ekki vera stærra en 1.500 fm samtals.
Svæðið er skipt upp í klasa og eru 5-6 lóðir í hverjum klasa. Á milli klasa eru reið- og göngustígar.
Á svæðinu er heimiluð ýmis atvinnustarfsemi tengd landbúnaði í samræmi við aðalskipulag Árborgar.
Kjörið svæði til að byggja upp sinn sælureit í sveitinni en með alla helstu þjónustu innan seilingar.
Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.