Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynnir í einkasölu.
Maríuhólar 8. Eignarlóð fyrir íbúðarhús í Skálmholtslandi. Tæpur 1 ha. 9.798 fmUm er að ræða nýtt byggingarland í Skálmholtslandi. Íbúðalóðir eru frá 7.738 -16.428 fm að stærð.
Nýtingarhlutfall lóða allt að 0,05 sem þýðir að á 10.000 fm lóð (1 ha) má byggja 500 fm.
Þægilegt byggingarland og grunnt niður á fast. Örstutt í malarnámur.
Skemmtileg og góð staðsetning þar sem allar árstíðir eiga sinn sjarma. Sutt í margar af fallegustu náttúruperlum Suðurlands. Fallegt útsýni m.a. til Heklu, Eyjafjallajökuls og Tindfjalla.
Skálmholtsland er efst í Flóahreppi og ekið er inn á landið til austurs af Skeiða- og Hrunamannavegi (vegur nr. 30)
Um 15 mín akstur er á Selfoss.
Alls eru skipulagðar 47 lóðir á svæðinu og koma 13 lóðir í sölu í fyrsta áfanga.
Hið skipulagða land er á Sveitarfélagsmörkum Flóahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Flóahreppur annast almenna þjónustu á svæðinu s.s. skólaakstur, snjómokstur og sorphirðu. Ath að samkvæmt deiliskipulagi á eftir að breyta innkomu inn á svæðið.
Í stofnbrautum innan svæðis verður neysluvatn (frá Flóahreppi) hitaveita (úr Áshildarmýri, rafmagn (Rarik) og ljósleiðari.
Stofnbrautir fyrir þær lóðir sem eru komnar í sölu eru tilbúnar að lóðarmörkum allra lóða og áætlað er að lagnir í vegum verði tilbúnar í haust
Í deiliskipulagsskilmálum koma fram nánari upplýsingar um byggingargerð húsa. Byggingarefni er frjálst en lögð er áhersla á að öll hús og mannvirki fari vel í umhverfi og verði í jarðlitum. Við gróðursetningu skal gæta þess að trjágróður komi ekki til með að skyggja á útsýni nágranna og forðast ágengar tegundir. Óheimilt er að láta lausamuni standa innan lóða til lengri tíma.
Gert er ráð fyrir rotþró á hverri lóð. Deiliskipulagsskilmálar eru hluti af kynningargögnum.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 4971155 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.