Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Heiðarveg 47 í Vestmannaeyjum sem er hæð og ris í tvíbýli á besta stað miðsvæðis í bænum. Húsið er byggt úr steini árið 1952 og er 172,8 m2 af því er bílskúr 34,2 m2. Gólfflötur eignarinnar er þó stærri þar sem hluti fermetra í risi teljast ekki með. Eignin er með 4 rúmgóðum herbergjum. Fyrir einhverjum árum var skipt um glugga, gólfefni og eldhús endurnýjað. Frábær staðsetning nálægt skóla, íþróttahúsi og miðbænum.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Nánari lýsing: 1. hæðForstofa: Flísar á gólfi
Stofa: parket á gólfi, opið í borðstofu
Eldhús: Parket á gólfi, snyrtileg viðarinnrétting, flísar á milli skápa
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, sturtuklefi, vaskur, wc, baðinnrétting, opnanlegur gluggi, handklæðaofn
Herbergi 1: Parket á gólfi, fataskápur
Herbergi 2: Parket á gólfi
2. Hæð/ risHerbergi 3: Parket á góli
Herbergi 4: Parket á gólfi
Geymsla/Þvottahús: Steypt gólf, óinnréttað rými með möguleika
Pallur: Timburpallur ofan á bílskúr
Bílskúr: Steypt gólf, endurnýjuð bílskúrshurð
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.