Álftarimi 1, 800 Selfoss
45.900.000 Kr.
Fjölbýli
3 herb.
103 m2
45.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1982
Brunabótamat
45.950.000
Fasteignamat
43.450.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Álftarimi 1. Snyrtileg rúmgóð þriggja herbergja íbúð með geymslu, 103,8 fm á fjórðu hæð í fjölbýlishúsi. 
Frábær staðsetning miðsvæðis á Selfossi, Stutt í grunnskóla, leikskóla, FSu, verslanir, íþróttavöllinn og sundlaugina.  Auk miðbæjarins með öllu sínu mannlífi og veitingastöðum. 

Nánari lýsing.
 Forstofa, hol. Stór stofa og útgengt á suðursvalir. Eldhús er opið inn í stofu og hol. Ágæt hvít innrétting og borðkrókur innst í eldhúsinu. Lokaður herbergjagangur, tvö svefnherbergi. Baðherbergi með góðum sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél.
Á gólfum íbúðar er nýlegt harðparket og á baðherbergi eru nýlegar flísar. Flísar á eldhúsi. Íbúðin er nýlega máluð.
Sérgeymsla á jarðhæð, 5,8 fm. Hjóla- og vagnageymsla í sameign og þvottahús.

Húsið var tekið í gegn að utan fyrir nokkrum árum og er í ágætu ástandi.

Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir, löggiltur fasteignasali s. 846-6581 eða [email protected] og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s 8648090 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.