Hús fasteignasala og Ragna Valdís Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali. kynna í einkasölu eignina Austurhólar 10 eign merkt 01-03. Þriggja herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi á Selfossi.Húsið er byggt árið 2021, gluggar eru ál/tré. Lóð er snyrtileg með sólpalli til vesturs. Snjóbræðsla er í stéttum og hjóla/vagngeymsla er í sameign.
Nánari lýsing
Forstofa: Er flísalögð með góðum innbyggðum fataskáp.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með fataskáp og parketi á gólfi,
Svefnherbergi: Er rúmgott, með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Er flísalagt með walk in sturtu, handklæðaofni, upphengdu klósetti, góðri innréttingu og nýrri innréttingu fyrir
þurrkara/þvottavél.
Eldhús: Er með hvítri L-laga innréttingu og nýrri eldhúseyju. Bakaraofn er í vinnuhæð, háfur, helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Er í opnu alrými sem tengir saman eldhús og borðstofu/stofu. Parket á gólfi. Útgengt er út á pall sem snýr til vesturs.
Geymsla. Er innan íbúðar.Mjög snyrtileg eign á góðum stað á Selfossi þar sem stutt er í leikskóla og verslanir.Nánari upplýsingar veitir Ragna Valdís Sigurjónsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8466581, tölvupóstur [email protected].
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.