Birkigrund 32, 800 Selfoss
83.500.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
160 m2
83.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1995
Brunabótamat
72.900.000
Fasteignamat
76.250.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu. Gott 160,5 fm, fjögurra herbergja parhús við Birkigrund 32 á Selfossi.   Húsið er timburhús klætt með liggjandi timburklæðningu og á þaki er járn-bára.  Á lóð er sólpallur með skjólgirðingu og bílaplan er malbikað.  Frábær staðsetning í rólegu hverfi. 

***** Afhending við kaupsamning ***** 


Nánari lýsing. Flísalögð forstofa með lausum fataskáp. Þrjú svefnherbergi. Fataskápar í öðru barnaherberginu og í hjónaherbergi.  Stofa, borðstofa og eldhús í stóru, opnu og björtu rými þar sem hurð er út á sólpall.  Upprunaleg eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi þar sem flísalagt er á milli borðplötu og efri skápa.  Rúmgott baðherbergi, innrétting, flísalögð sturta, baðkar, handklæðaofn og wc.  Flísalagt þvottahús með vinnuborði og hillum og úr því er innangengt í rúmgóðan bílskúr. Á gólfum er parket og á votrýmum eru flísar.
Bílskúr er bjartur og rúmgóður með máluðu gólfi og uppteknu lofti þar sem eru tvö geymsluloft. 

Góð eign á góðum stað í góðum bæ.

Hringið og bókið skoðun.

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða [email protected]
Hringið og bókið skoðun.


 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan Bær því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Fletta í fasteignalista
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.