Lágengi 16, 800 Selfoss
77.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
5 herb.
172 m2
77.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1981
Brunabótamat
79.050.000
Fasteignamat
77.250.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu gott fimm herbergja einbýlishús við Lágengi 16 á Selfossi.  Húsið er 131 fm og þar við bætist rúmgóður bílskúr 41 fm, samtals 172 fm.  Húsið er byggt árið 1981 og bílskúr byggður sjö árum seinna.   Lóðin er 750 fm, bílaplan er malbikað og garðurinn gróinn.  Við aðalinngang er steypt stétt.
Áhugaverð eign í hjarta bæjarins. Öll helsta þjónusta s.s. leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, íþróttaaðstaða, sundlaug og líkamsrækt og allar helstu verslanir í göngufæri.


Nánari lýsing.
Flísalögð forstofa með fatahengi og inn af forstofu er gert ráð fyrir gestasalerni.  Fjögur fín svefnherbergi, stór fataskápur í hjónaherbergi.  Eldhús með góðri endurnýjaðri innréttingu þar sem flísalagt er á milli efri skápa og borðplötu.  Inn af eldhúsi er annarsvegar þvottahús með gönguhurð út í bakgarð og hinsvegar búr.  Rúmgóð og björt borðstofa og stofa í opnu rými.  Flíasalagt endurnýjað baðherbergi með innréttingu, sturtu með glervegg, handklæðaofn og upphengt wc.  Rúmgóður bílskúr, endurnýjuð innkeyrsluhurð með hurðaopnara.     

Fín eign á góðum stað.      ********** Bókið skoðun **********

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]  
                                         
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.