Laufhagi 15, 800 Selfoss
79.900.000 Kr.
Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
3 herb.
169 m2
79.900.000
Stofur
2
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1976
Brunabótamat
77.050.000
Fasteignamat
76.550.000

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali, ásamt HÚS fasteignasölu kynna í einkasölu gott þriggja herbergja (áður fimm)  einbýlishús við Laufhaga 15 á Selfossi.  Húsið er byggt úr forsteyptum einingum, 119,9 fm og þar við bætist rúmgóður bílskúr 50 fm, samtals 169,9 fm.  Húsið er byggt árið 1976 og bílskúr byggður sjö árum seinna.  Húsið hefur í gegnum tíðina fengið gott viðhald.  Lóðin er 746 fm, möl í innkeyrslu og garðurinn gróinn.  Við aðalinngang er steypt stétt og baka til er hellulögð stétt með snjóbræðslu.
Áhugaverð eign í hjarta bæjarins. Öll helsta þjónusta s.s. leikskóli, grunnskóli, framhaldsskóli, íþróttaaðstaða, sundlaug og líkamsrækt og allar helstu verslanir í göngufæri.


Nánari lýsing.
Flísalögð forstofa með stórum fataskáp.  Tvö mjög rúmgóð svefnherbergi og rúmgott sjónvarpshol innst á herbergjagangi.  Eldhús með góðri innréttingu þar sem flísalagt er á milli efri skápa og borðplötu.  Úr eldhúsi er gönguhurð út í bakgarð.  Rúmgóð og björt borðstofa og stofa í opnu rými.  Flíasalagt baðherbergi með innréttingu, sturtu með glervegg og þar er gert ráð fyrir þvottavél/þurrkara.  Stór sérstæður bílskúr þar sem herbergi/geymsla er innst í honum.  Endurnýjuð innkeyrsluhurð með hurðaopnara í bílskúr.     

Góð eign á góðum stað.      ********** Bókið skoðun **********

Nánari upplýsingar veitir Hafsteinn Þorvaldsson, viðskiptafræðingur og löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, [email protected]  
                                         
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.