Akbraut , 851 Hella
300.000.000 Kr.
Lóð/ Jörð
6 herb.
210 m2
300.000.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2010
Brunabótamat
100.950.000
Fasteignamat
55.630.000

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s. 896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: 
Akbraut í Rangárþingi ytra, kúabú í fullum rekstri með 137.752L greiðslumarki í mjólk,  á 554ha jörð á mjög fallegum útsýnisstað á bökkum Þjórsár.
Allur bústofn, framleiðsluréttur, hey og véla- og tækjakostur til búskapar fylgir við sölu.

Um er að ræða 554ha jörð, íbúðarhús og fjós með legubásum og mjaltabás, hvort tveggja byggt árið 2010, og tvö eldri útihús, fjárhús og uppeldishús fyrir nautpening.  Einnig allur bústofn, greiðslumark upp á 137.752L í mjólk, vélakostur og tæki til búskapar og veiðiréttur í Veiðivötnum og Þjórsá. 
Íbúðarhúsið skráð 210fm með bílskúrnum, 5-6herbergja og er á tveimur hæðum. Sú neðri er steypt en efri hæðin timburhús frá SG Húsum á Selfossi, gólfplatan milli hæða steypt. Inngangur er á efri hæð og komið þar inn í flísalagða forstofu með hengi fyrir yfirhafnir og tréstiga upp í parketlagt og panelklætt risrými, ekki full lofthæð þar.   Forstofuherbergi með tvöföldum fataskáp og parketi á gólfi.  Þá sjónvarpshol, stofa, borðstofukrókur og eldhús, allt í opnu parketlögðu rými og upptekin loft nema í sjónvarpsholinu. Gengt út á pall við austurenda hússins úr stofu, þak hússins nær yfir hann. Tréstigi niður á neðri hæð, rúmgóður bílskúr þar með innkeyrsludyrum og gönguhurð, köld geymsla inn af honum og þvottahús með máluðu gólfi og skolvaski í vinnuborði.  Austurendi neðri hæðar er lokað rými sem gæti verið sér íbúð og samanstendur af svefnherbergi og stærra rými sem gæti verið stofa og eldhús, og stórt gluggalaust baðherbergi með sturtu, klósetti, handklæðaofni og handlaug á innréttingu, epoxy á gólfi þess og upp á vegg í sturtunni en plastparket á gangi, herbergi og stofu. 
Fjósið er 741fm stálgrindahús frá Landstólpa, klætt með PIR samlokueiningum, mænisgluggi til loftræstingar og áburðarkjallari undir að stórum hluta. Þar eru í dag 32 básar fyrir mjólkurkýr, 15 legubásar og uppeldisstíur fyrir kvígur og kálfa.  Hægt væri að breyta fjósinu og hafa legubása fyrir allt að 60 kýr ef uppeldi væri í öðru húsi. Mjaltabás með 10 SAC tækjum (tölvutengdum) og tveimur fötutækjum fyrir frátökumjólk, 2000L mjólkurtankur, klósett og skrifstofuherbergi.  Fjórar misstórar innkeyrsludyr og síló fyrir kjarnfóður.  Í dag eru 25 mjólkandi kýr í fjósinu sem dugar til að fylla upp í núverandi framleiðslurétt sem er samtals 137.752 lítrar í mjólk.   Ekkert greiðslumark fyrir sauðfé er á jörðinni. 
Fjær bænum eru svo tvö eldri útihús, fjárhús sem samanstendur af steyptri hliðarbyggingu á stálbragga, sem nýttur en til skjóls fyrir vélar og eldishús fyrir nautpening, bæði nokkuð komin til ára sinna en þjóna þó hlutverki sínu þokkalega enn. 
Jörðin er skráð um 320ha en mæld 554ha samkvæmt vefsjá HMS, þar af upp undir 70ha ræktaðir en undanfarin ár hafa rúmlega 50ha verið nýttir sem tún.  Hún er í eigu Hagakirkju eins og hluti framleiðsluréttarins.
Kúabúið og jörðin verða seld saman sem ein heild.  
Áhugasamir eru hvattir til að kynna sér áform um Holtavirkjun, en framkvæmda- og áhrifasvæði hennar er við og á hluta jarðarinnar, - ef af verður.
Við framkvæmdasvæðið er einnig gamalt útihús í eigu bróður ábúandans.

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali, í síma 896 9565, tölvupóstur [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald samkv. gjaldskrá lánasofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.