Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna:Breiðamýri 3, Selfossi, 68,5fm iðnaðarbil merkt 0112 í nýlegu atvinnuhúsnæði.Bilið hefur verið í útleigu í nokkra mánuði en er að losna.Stærð gólfflatar bilsins er u.þ.b. 5m x 12,4m, lofthæð inni u.þ.b. 3,9m - 4,8m. Stærð innkeyrsludyra 3x3,5m.
Gólfplata er steinsteypt og vélslípuð, burðarvirki límtré, klæðning þaks og veggja úti og inni samlokueiningar með PIR einangun. Innkeyrsludyr eru á hverju bili, 3m breiðar og 3,5m á hæð og göngudyr við hlið þeirra úr PVC efni eins og gluggarnir á bakhlið sem eru með tvöföldu einangrunargleri og björgunaropi.
Bilið er hitað upp með hitablásara og LED lýsing í lofti og yfir útidyrum, og gert er ráð fyrir tengibúnaði vegna hleðslu rafbíla í töflu og þriggja fasa rafmagn. Einnig lagnir til staðar fyrir skolvask og klósett. Lóð malbikuð framan við húsið og eitt bílastæði framan við á um 30fm sérnotafleti. Mulningur í lóð baka til og kvöð um aðgengi að inntaksrýmum.
Á bilinu hvílir u.þ.b. kr. 2,6millj. virðisaukaskattskvöð sem kaupandi yfirtekur.
Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar í síma 896 9565 eða í tölvupósti [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700.- af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.