Hraunbær 31, 810 Hveragerði
86.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
144 m2
86.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
69.800.000
Fasteignamat
75.900.000

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Snyrtilegt 4herb, 144fm, endaraðhús með bílskúr í Hveragerði. 
Stór pallur með heitum potti. 

Forstofan er rúmgóð og með skóskápum og hengi fyrir yfirhafnir. 
Innangengt í flísalagðan 26,5fm bílskúrinn á hægri hönd, stór innrétting þar fyrir þvottavél og þurrkara og geymsla inn af.  
Rennihurð fyrir gangi inn í íbúðina og hjónaherbergið og baðherbergi þar strax til vinstri. Baðherbergið flísalagt í hólf og gólf og bæði með sturtu og baðkari, upphengdu klósetti og handlaug á innréttingu með skúffum undir og speglaskáp yfir. Einnig handklæðaofn og stór skápur fyrir handklæði og þess háttar. Hjónaherbergið vel rúmgott og með góðu skápaplássi og veggföstum baklýstum rúmgafli. Gangur áfram inn í sameiginlegt rými stofu og eldhúss annars vegar og sjónvarpshols og tveimur svefnherbergjum hins vegar. Eldhúsið stílhreint með skúffum niðri og skápum yfir og lýsing undir þeim.  Eldavél og háfur og flísar á milli skápa, gott vinnupláss á borðum og eyju sem hægt er að sitja við.  Stofan björt og upptekin loft þar sem og í eldhúsinu og innfelld lýsing. Gengt út á stóran suðvestur pall með heitum potti og skjólveggjum umhverfis, og hellulagður "morgunverðarpallur" þar utan við.  Hátt til lofts í dökkmáluðu sjónvarpsholinu og tvö svefnherbergi þar við, annað með fataskápum. Ljósar flísar á öllum gólfum hússins og gólfhiti.  Að utan er húsið klætt með standandi viðarklæðningu, hurðir og gluggar út tré og mulningur í bílaplani.  Lóðin aðeins stærri en pallurinn og snúrustaur og lágur geymsluskúr utan skjólgirðingarinnar. 
Eign sem vert er að skoða.

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565    [email protected]  
 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.