Eyravegur 34A, 800 Selfoss
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með lyftu
5 herb.
93 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
57.350.000
Fasteignamat
54.100.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu Eyraveg 34A, 800 Selfoss í nýju fjölbýlishúsi, nánar tiltekið eign merkt 03-04.  Eignin er á 3. hæð og er fullbúin 93,6 fm, 5 herbergja.   Lyfta og sérinngangur af svölum.  Svalir til norðausturs. Útsýni. 

Íbúðin:
Eldhús: innrétting frá HTH.  Eldhústæki, keramik helluborð, ofn, vifta og uppþvottavél.
Baðherbergi: Gólf er flísalagt. Flísalagt er í kringum sturtu.  Þar er innrétting, upphengt klósett með hæglokandi setu. 
Herbergi: Svefnherbergi eru 4 og eru fataskápar í öllum herbergjum.
Forstofa: Fataskápur er í forstofu.
Stofa:  Útengt er á svalir úr stofu. 
Innihurðar matt hvítar 80 cm.  Gólfefni vínilparket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi. 

Húsið: 
47 íbúðir eru í húsinu á 4-5 hæðum. Húsið er gert úr forsteyptum einingum og klætt með litaðri álklæðningu á völdum stöðum við svalir. Þak er byggt úr steyptum filigran plötum með ásteypulagi, síðan er þak einangrað ofan með 200-225mm plasteinangrun.  PVC þakdúkur kemur ofan á plasteinangrun, þakpappi og farg þar yfir.   Hurðir og gluggar ál-tré. 
Sameign.  Á neðstu hæð er tæknirými sem og vagnageymsla og úti á lóð er sameiginlegt rými fyrir hjól.  

Lóðin:
Lóðin er frágengin og snyrtileg.  Bílastæði eru malbikuð. Gangstéttar hellulagðar.  Í stað hefðbundinna sorptunnuskýla eru djúpgámar.  Þá er hellulagt fyrir aftan svalainngang neðstu hæðar í línu við svalakant efri hæða,  

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali, í síma 862 1996, tölvupóstur [email protected].

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.