Tjörn , 806 Selfoss
64.900.000 Kr.
Sumarhús
5 herb.
123 m2
64.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Inngangur
Sér
Byggingaár
2006
Brunabótamat
68.400.000
Fasteignamat
52.650.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Tjörn lóð 53 og 55 í Biskupstungum, Bláskógabyggð.  Gott sumarhús/heilsárshús.  Alls 123 fm á tveimur tæplega 6000 fm eignarlóðum. Byggt 2006. Húsið er 85,8 fm að grunnfleti á steyptri gólfplötu, gólfhiti þar sem flísalagt er. Svefnloft er skráð 13,2 fm (er að grunnfleti 31 fm). Gestahús er 24 fm.  Alls skráðir 123 fm. Auk þess eru tvö lítil aukahús og tveir niðurgrafnir geymslugámar neðan við húsið. Hitaveita.

Mjög áhugaverð eign en kominn er tími á að bera á allt tréverk utanhúss ásamt sólpalli og skjólveggjum.

Lóðirnar eru tvær eins og áður sagði. Tjörn lóð 53 er 5.981 fm og Tjörn lóð 55 er 5.723 fm. Húsin eru á lóð 55. Vel grónar fallegar lóðir með miklum trjágróðri, mikið útsýni og fjallasýn. Ekinn er Reykjavegur Nr. 355 og beygt þar sem stendur Kötluholt. Síðan kemur vegur til hægri, Bragabót og við hann eru lóðirnar á hægri hönd.


Nánari lýsing aðalhúss. Flísalögð opin forstofa með fataskáp og hol/gangur. Flísalagt baðherbergi með sturtu og tengi fyrir þvottavél, hurð út á sólpall. Tvö rúmgóð svefnherbergi með vönduðu parket. Flísalagt salerni með innréttingu. Rúmgóð stofa, borðstofa og eldhús í opnu og björtu rými, hurð út á sólpall. Upptekin loft, harðparket á gólfi. Eldhúsinnrétting með eyju.  Úr forstofu er góður stigi upp á svefnloft sem er eitt opið rými með góðri lofthæð. Húsið er allt hið vandaðasta að innan. Hiti í gólfi.
Lýsing gestahúss. 24 fm. Opið rými með parketi, eldhús með einfaldri innréttingu og borðstofa og svefnrými. Salerni. 

Á lóðinni er hænsnakofi og geymsluhús (bjálkahús) og gamalt gróðurhús. Neðan við húsið eru niðurgrafnir tveir 20 ft geymslugámar.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.káp.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.