Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í almennri sölu: Strembugötu 24 sem er fallegt og vel skipulagt einbýlishús með 3 svefnherbergjum í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1963 og er 161,1 m2 af því er bílskúr 30,6 m2 byggður árið 1990. Um 18 m2 snyrtilegt óskráð rými í brunni ásamt inntaksrými nýtist sem verkstæði/geymsla.
Gróðursæll og fallegur garður, einstakt útsýni. Búið er að endurnýja eitthvað af gluggum og hluta gólfefna.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Nánari lýsing: Forstofa: Flísar á gólfi, fatahengi
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á flísalagðan pall
Eldhús: Parket á gólfi, snyrtileg viðarinnrétting, rúmgott eldhús með glæsilegu útsýni
Herbergi: Flísar á gólfi, skápar
Herbergi: Flísar á gólfi, skápar
Herbergi: Flísar á gólfi, skápar
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, innrétting, sturta, wc, opnanlegur gluggi
Þvottahús: Flísar á gólfi, rúmgott, lúga á háaloft
Búr: Flísar á gólfi, inn af þvottahúsi
Bílskúr: Flísar á gólfi, nýleg bílskúrshurð, góð innrétting, rafmagn og hiti
Pallur: Flísar á gólfi, útgengt úr stofu
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.