Furugrund 81, 200 Kópavogur
57.500.000 Kr.
Fjölbýli
2 herb.
57 m2
57.500.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
0
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1979
Brunabótamat
28.400.000
Fasteignamat
50.150.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu 2.ja herbergja íbúð á 3.hæð, Furugrund 81, Kópavogi, með stórum svölum.  Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning.  

Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 57,6 fm. auk þess er ca. 5 fm geymsla á jarðhæð sem er óskráð og því ekki inn í fermetratölu.

Húsið var lagfært og málað árið 2019.  Þakjárn var á sama tíma endurnýjað.  Timburverk á svölum endurnýjað. Sameignin er snyrtileg og vel umgengin. Dyrabjöllukerfi endurnýjað.
 
Lýsing eignar:  
Forstofa/Hol: Flísar á gólfi og innfelldir skápar. 
Stofa/borðstofa: Rúmgóð með gluggum á tveimur hliðum. Parket á gólfi. Útgengt á stórar suðursvalir með máluðu gólfi
Eldhús: Viðarinnrétting, flísar á milli skápa,  borðkrókur við glugga. Dúkur á gólfi.
Hjónaherbergi: Innfelldir fataskápar sem ná upp í loft. 
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf  þar er gólfhiti. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn, viðarinnrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél.
Geymsla: Sér á jarðhæð  með glugga ca.5 fm sem ekki eru inni í fermetrafjölda íbúðar
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla:

Staðsetningin er frábær, örstutt í skóla, íþróttasvæði HK og tvo leikskóla þar sem hvergi þarf að fara yfir götu. Einnig er  útivistarparadísin í Fossvogsdal með hjóla- og gönguleiðir m.a. í Elliðarárdal, Nauthólsvík í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996  [email protected]   
,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                          
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.