Laxabakki 11, 800 Selfoss
109.900.000 Kr.
Einbýli
5 herb.
193 m2
109.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
2003
Brunabótamat
98.850.000
Fasteignamat
95.250.000

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Laxabakki 11 Selfossi. Vandað, steypt og steinað fimm herbergja einbýlishús á 1.093 fm jaðarlóð með fallegu útsýni, skammt frá bökkum Ölfusár.
Húsið er viðhaldslétt og gluggar eru ál/tré. Hellulögð innkeyrsla með snjóbræðslu.


Nánari lýsing. Flísalögð forstofa og forstofuherbergi, Hol, gangur, geymslaSjónvarpsherbergi með rennihurð, hægt að nýta sem svefnherbergi. Rúmgóð björt og falleg stofa með uppteknu lofti, Hurð út á sólpall. Eldhús með fallegri danskri innréttingu. Mjög skemmtilegur horngluggi í eldhúsi, rúmgóður borðkrókur. Á herbergjagangi eru tvö rúmgóð svefnherbergi, fataskápur í öðru þeirra. Á gólfum hússins er gegnheilt parket nema á tveimur herbergjum þar sem er eikarparket og harðparket. Rúmgott baðherbergi er flísalagt, stór innrétting, baðkar og sturta. Flísalagt þvottahús, innrétting. Baðherbergi með sturtu inn af þvottahúsi. Hurð út á verönd úr þvottahúsi þar sem er gönguhurð í bílskúr. Bílskúr er eitt opið rými.
Hiti er í gólfum með stýringum. 
Lokaður sólpallur með heitum potti. Á hellulagðri verönd norðan við húsið er garðhús/geymsla.
Lóðin er tæpir 1.100 fm eignarlóð, bakhluti lóðarinnar er með náttúrulegum gróðri og einstöku útsýni.

Vandað og vel byggt hús á frábærum stað.

Nánari upplýsingar  veitir Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali s 8648090 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.