Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Hásteinsveg 7 sem er eign á miðhæð í þríbýli á frábærum stað miðsvæðis í Vestmannaeyjum. Eignin er byggð úr steypu árið 1940 og er 86,5 m2. Virkilega björt, falleg og vel skipulögð eign með fallegu útsýni. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð síðust ár, nýlegt eldhús og gólfefni, skipt var um járn á þaki árið 2012.
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105Nánari lýsing: Forstofa: Parket á gólfi, fatahengi
Eldhús: Flísar á gólfi, nýleg hvít Ikea innrétting, nýleg tæki
Stofa: Parket á gólfi, útgengt á svalir í suður
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, stórt baðkar, innrétting, skápur, opnanlegur gluggi
Svefnherbergi: Parket á gólfi, skápur
Svefnherbergi: Parket á gólfi
Geymslur: 2 geymslur fylgja eigninni, Steypt gólf, hillur
Sameiginlegt þvottahús: Steypt gólfSvalir: Timbur á gólfi
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna