Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Strandveg 30 sem er glæsileg eign á 3. hæð í fjölbýli á frábærum stað í Vestmannaeyjum. Eignin er 69,9 m2 að stærð, þar af er 5,1 m2 geymsla í kjallara. Húsið var byggt úr steini árið 1958 en allt endurgert árið 2019. Glæsileg eign í lyftublokk á besta stað miðsvæðis í Vestmannaeyjum. Sameiginleg hjólageymsla. Þvottavél og þurrkari getur fylgt með. Góðar svalir, fallegt útsýni
BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 861
Nánari lýsing: Forstofa: Parket á gólfi, skóskápur, snagar
Eldhús: Hvít háglans innrétting, innbyggður ísskápur og uppþvottavél, háfur, tveir ofnar. flísar á milli skápa
Stofa: Parket á gólfi, opið er úr eldhúsi í stofu, útgengt á rúmgóðar svalir
Baðherbergi: Flísar í hólf og gólf, upphengt wc, walk in sturta, innrétting, aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara
Herbergi: mjög rúmgott herbergi, parket á gólfi, skápur
Geymsla: Flísar á gólfi, hillur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.