Stórt fjölskylduhús með mörgum svefnherbergjum.
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Túngata 50 Eyrarbakka. Stórt og gott fjölskylduhús með 6 svefnherbergjum. Ný utanhússklæðning og þakjárn. Nýlegt eldhús o.fl.
Jaðarlóð á Eyrarbakka.
Bókið skoðun hjá fasteignasala.Húsið er byggt 1959 og 183,1 fm. Holsteinshús en innveggir steyptir. Nýlokið er við að einangra og klæða húsið og nýtt járn er á þaki húss og bílskúrs. Gluggar og gler í ágætu ástandi og hluti glugga nýlegur.
Útidyrahurðar endurnýjaðar. Hiti í gólfi á jarðhæð, gólfefni jarðhæðar endurnýjuð. Nýleg eldhúsinnrétting og tæki og neysluvatn frá þvottahúsi í eldhús endurnýjað. Bílskúr er upprunalegur, hann er einangraður og er 29 fm og nýttur sem geymsla.
Nánari lýsing húss. Opin
forstofa með vínilflísum,
hol.
Stofa,
borðastofa og
eldhús í opnu rými. Rúmgott eldhús. Allt opið og bjart. Stigi upp á millihæð með skemmtilegri lýsingu í tröppum. Nýtt parket á stigapalli. Þar eru tvö
svefnherbergi og flísalagt
baðherbergi sem var endurnýjað fyrir ca 10 árum. Sturtuhorn og innrétting. Upp á efri hæð er
stofa/sjónvarpshol. Suðursvalir. Þrjú
svefnherbergi, eitt frekar lítið.
Salerni í ágætu ástandi. Gólfefni efri hæðar farin að láta á sjá.
Gengið er niður í kjallari úr holi. Hann er ekki með fulla lofthæð en full nýtanlegur. Þar er
hol/gangur, stórt
svefnherbergi og
þvottahús. Sérinngangur í kjallara.
Gróinn garður. Sólpallur og hellulögð verönd við inngang, sunnan við húsið. Í bakgarði eru tvö garðhús sem fylgja með eigninni.
Áhugavert fjölskylduhús sem getur hentað stórum fjölskyldum.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]
Bókið einkaskoðun.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.