Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu nýtt parhús, Hæðarland 1, Selfossi.151,4 fm parhús með bílskúr. Þrjú svefnherbergi. Eignin afhendist fullbúin að utan og innan í samræmi við skilalýsingu seljanda. Afhending er 15.desember.2024.
Nánari lýsing:Forstofa: Flísalögð forstofa
Þrjú svefnherbergi öll með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með opnum sturtuklefa með gleri, innrétting og upphengt salerni. Flísalagt gólf. Veggir við sturtu eru einnig flísalagðir. Sturtutæki eru innbyggð. Handklæðaofn.
Sjónvarpshol: Í miðrými hússins er gott sjónvarpshol.
Eldhús: Eldhús er hluti af opnu alrými. Eldhúsinnrétting frá IKEA og borðplata frá Fanntófell
Stofa: Björt stofa, í framhaldi af eldhúsi, þaðan er útgengt á baklóð um rennihurð. Parket á gólfi.
Þvottahús: Flísalagt þar er innrétting.
Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.
Bílskúr: Innkeyrsluhurð er flekahurð með gönguhurð. Flísar á gólfi. Geymsluloft með niðurfellanlegum stiga.
Mulningur í bílaplani. Lagt er fyrir heitum potti. Lóð er þökulögð. Forsteypt 3 ja tunnu ruslatunnuskýli án hurða og loka.
Kaupendur geta haft áhrif á gólfefni, innihurðir og framhliðar á innréttingar.Innréttingar eru frá IKEA og innihurðir og gólfefni frá BYKO. Borðplötur í eldhús, bað og þvottahús eru frá Fanntófell. Vaskar og blöndunartæki í eldhús, bað og þvottahús eru frá IKEA.
Húsið er byggt úr timbri árið 2024. Að utan er það klætt með lituðu bárujárni. Litað bárujárn er á þaki. Gluggar ál/tré. Gólfhitalagnir, fullkomið loftræstikerfi uppsett. Forhitari á neysluvatni. Veggir eru gifsklæddir. Ljósar viðarþiljur eru í loftum.
Hringið og bókið skoðun.Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 [email protected] ,,Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, breytilegt. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð
5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati.