Loftur Erlingsson lgf s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:
Hlýlegt þriggja herbergja 50,5fm sumarhús á 6578fm EIGNARLÓÐ í Grímsnesinu.
Sundlaugin í Hraunborgum og golfvöllurinn að Kiðjabergi í næsta nágrenni. Í
forstofu er hengi fyrir yfirhafnir og
baðherbergið á vinstri hönd. Þar er nýr sturtuklefi, klósett, handlaug á skáp og speglaskápur yfir, nýlegt plastparket á gólfi og þiljur á veggjum.
Tvö svefnherbergi eru í húsinu, annað sínu stærra og með fataskáp, hitt með tveimur rúmum í mismunandi hæð, plastparket á gólfum þeirra, hvítmálaður panell á veggjum og ómálaður í lofti. Loks er
opið rými eldhúss og stofu og gengt út á pall á suðurenda hússins úr stofunni. Í
eldhúsi er innrétting og ágætt borð- og skápapláss. Eldavél frá AEG og þiljur milli skápa. Plastparket á gólfi, panell á veggjum og hvítmálaður panell í lofti. Að utan er húsið klætt með standandi viðarklæðningu, hurðir og gluggar úr tré og bárujárn á þaki og undirstöður hússins eru tjargaðir símastaurar.
Góður pallur fyrir suðurenda og vesturhlið hússins, - endurnýjaður að hluta.
Verkfæraskúr með vinnuborði og skýli fyrir grill, ruslatunnu og garðverkfæri.
Góðar grasflatir á lóðinni beggja vegna hússins og öryggishlið á veginum inn á svæðið.
Undanfarin ár hefur ýmislegt verið endurnýjað svo sem rotþró og lagnir að húsi 2008, þakkantur 2015, húsið allt sprautað að utan árið 2016 og settur gólfhiti og plastparket á allt húsið fyrir um 5 árum og stýringar fyrir gólfhitann endurnýjaðar 2023.
Innbú og ýmis áhöld og verkfæri gætu fylgt við sölu að einhverju leiti eftir nánara samkomulagi.
Virkilega hlýlegt hús á rólegum stað í sveitasælu. Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar og sýnir eignina.
S. 896 9565 [email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup) lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.