Lyngalda 1a, 850 Hella
57.800.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
3 herb.
99 m2
57.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2025
Brunabótamat
0
Fasteignamat
4.270.000

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.8969565 og Hús fasteignasala kynna:
Lyngalda 1a, 3herb., 99,7fm endaraðhús með bílskúr í byggingu á Hellu, áætlaður afhendingartími er apríl 2025.

Helstu punktar úr skilalýsingu:
Húsið verður hefðbundið timburhús, timburgrind í útveggjum, kraftsperrur í þaki, milliveggir með blikkstoðum klæddir gipsi, tvöfaldir brunaveggir milli íbúða.
Að utan verður húsið klætt með bárujárni sem og þakið.  Gluggar og hurðir verða ál/tré.
Stofa og eldhús verða í sameiginlegu opnu rými og gengt þaðan út í garð fyrir enda hússins.
Innrétting í eldhúsi verður með plastlagðri borðplötu, vaskur og blöndunartæki fylgja, keramik helluborð.
Fataskápar verða í hjónaherbergi, barnaherbergi og forstofu.
Á baðherbergi verður sturta með glerskilrúmi og veggir við sturtu flísalagðir með samskonar flísum og gólf, handlaug á innréttingu og blöndunartæki fylgja. Upphengt klósett og innrétting fyrir þvottavél.
Innihurðir verða yfirfelldar og hvítar að lit.
Gráar flísar verða á gólfum í forstofu og baðherbergi/þvottahúsi. 
Harðparket í viðarlit verður á öðrum rýmum. Hefðbundið gólfhitakerfi og handklæðaofn á baði.
Í bílskúrnum verður vélslípað gólf og innkeyrsludyr með rafopnun.
Lóðin skilast með þökulögn, mulning í bílaplani og ruslatunnuskýli, lok fylgja ekki.

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali veitir allar nánari upplýsingar.
S. 896 9565    [email protected]  

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð.
5. Skipulagsgjald 0,3% af brunabótamati eftir lokaúttekt.
 
Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.