Stór íbúð með fjórum svefnherbergjum. Gott verð. Bókið skoðun hjá fasteignasala.
Laus til afhendingar í desember
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna. Nýleg fimm herbergja íbúð við Eyravegi 34B, Selfoss. Íbúð 204. Eignin er á annari hæð og er fullbúin, 93,6 fm. Sér inngangur af svölum og svalir til norðvesturs.Nánari lýsing.Íbúðin er fullbúin með gólfefnum, vínilparket á stofu, eldhúsi og herbergjum og flísar á baðherbergi.
Eldhús: innrétting frá HTH. Eldhústæki, keramik helluborð, ofn, vifta og uppþvottavél.
Baðherbergi: Gólf er flísalagt. Flísalagt er í kringum sturtu. Þar er innrétting, upphengt klósett með hæglokandi setu. Tengi fyrir þvottavél.
Herbergi: Svefnherbergi eru 4 og eru fataskápar í öllum herbergjum.
Forstofa: Fataskápur er í forstofu.
Stofa: Útengt er á svalir úr stofu.
Innihurðar matt hvítar 80 cm. Allir veggir að innan eru spartlaðir, grunnaðir og málaðir í ljósum lit. Ekki eru sólbekkir í gluggum.
Húsið: 47 íbúðir eru í húsinu á 4-5 hæðum. Húsið er gert úr forsteyptum einingum og klætt með litaðri álklæðningu á völdum stöðum við svalir. Þak er byggt úr steyptum filigran plötum með ásteypulagi, síðan er þak einangrað ofan með 200-225mm plasteinangrun. PVC þakdúkur kemur ofan á plasteinangrun, þakpappi og farg þar yfir. Hurðir og gluggar ál-tré. Pólýhúðað stálhandrið á svölum.
Sameign. Á neðstu hæð er tæknirými sem og vagnageymsla og úti á lóð er sameiginlegt rými fyrir hjól. Gólf í framangreindum sameignarrýmum eru máluð í gráum lit.
Lóðin:Lóðin er þökulögð. Bílastæði eru malbikuð. Gangstétt hellulögð. Í stað hefðbundinna sorptunnuskýla eru djúpgámar.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða [email protected]. Bókið skoðunGjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu
5. Skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, lagt á að lokinni lokaúttekt
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.