Foldahraun 42, 900 Vestmannaeyjar
Tilboð
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
4 herb.
98 m2
Tilboð
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
1975
Brunabótamat
41.750.000
Fasteignamat
34.200.000

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- [email protected] og Hús fasteignasala kynna í einkasölu: Foldahraun 42F, sem er endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi í fjölbýli í Vestmannaeyjum.  Eignin er 98, m2 að stærð, þar af er 5,6 m2 geymsla í kjallara.  Eignin er byggð úr steini árið 1975.  Frábær fyrsta eign, fyrir þá sem eru að minnka við sig eða sem dvalarstaður í eyjum.  Búið er að klæða eignina að hluta að utan.  Stutt í dalinn, golfvöllinn og Hamarskóla þar sem er búið að koma upp skemmtilegu leiksvæði með hoppudýnu og fleiru. Engin skuld á húsfélagi. 

Endaíbúð á jarðhæð með sérinngangi, möguleiki á að gera pall.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið [email protected] eða í síma 8611105

Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: flísar á gólfi, skóskápur
Hol: dúkur á gólfi
Eldhús:  flísar á gólfi, innrétting, borðkrókur
Stofa:  dúkur á gólfi, útgengt út í garð
Svefnherbergi:   parket á gólfi, útgengt í garð
Svefnherbergi: parket á gólfi, Skápur
Svefnherbergi: parket á gólfi,
Baðherbergi:  dúkur á gólfi, baðkar, vaskur með nettri innréttingu, tengi fyrir þvottavél og þurrkara
Geymsla: Geymslan er í kjallara hússins og er hún 5,6 m2


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

 

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.