Hellismýri 8E, 800 Selfoss
44.900.000 Kr.
Atvinnuhús
0 herb.
137 m2
44.900.000
Stofur
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
31.050.000

Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali s. 862 1996 og HÚS fasteignasala kynna í sölu  Hellismýri 8E, Selfossi 
Nýtt fullbúið, mjög vandað og snyrtilegt iðnaðarhúsnæði,  malbikað plan, góð lofthæð.  Eignin er tilbúin til afhendingar við undirritun kaupsamnings.  Grunnflötur neðri hæðar er 120,1 fm auk 17 fm millilofts.  Möguleiki á seljandaláni. 

Þak og veggir eru með burðarvrki úr límtré með málmklæddum 80mm “Quad Core” samlokueiningum á veggjum með PIR einangrunarkjarna og með málmklæddum 100 mm “Quad Core” samlokueiningum með PIR einingum á þaki. 
Steyptur sökkull með vélslípaðri plötu.   
Innkeyrsluhurð 4,0 m breið og 4,07 m há, Héðinshurð með rafmagnsopnun, og gluggaröð 
PVC gluggar og gönguhurðar. Tvær gönguhurðir á sitthvorri hliðinni.  Tvöfalt gler.
Upphitun gólfhitalagnir. 
Álþakkantur og lýsing undir þakskeggi á sólúri. 
Afstúkað snyrtilegt salerni á efri hæð.
Timburstigi upp á milliloft með handriði. 
Á millilofti eru gluggar.  Burðarvirki millilofts er stálbitar og límtrésplötur.
Vegghæð hússins er  4,485 m og mænishæð er  6,309m. 
Nettóflötur þ.e. innanmál húss er skv. teikningu 6,833m að breidd og 17,00m að lengd.   
Lóðin framan við hús og við enda hússins er malbikuð.  
Hlutdeild í húsi og lóð er 16,74%.  Lóðin  er 2222,5  fm leigulóð. 
Sérafnotafletir á lóð framan við hús 8 m frá húsi og aftan við hús 2 m frá húsi.  
Gatnagerða- og byggingarleyfisgjöld innfalið í verði. Inntaksgjöld rafmagns, kalda vatns og hitaveitu er greitt.

Kaupendur yfirtaka áhvílandi  VSK kvöð og undirrita yfirlýsingu þess efnis samhliða gerð kaupsamnings.  Sé kaupandi ekki með virðisaukaskattskylda starfsemi þarf kaupandi að greiða VSK. kvöð upp fyrir sinn hluta og bætist þá sá hluti við umsamið kaupverð eignarinnar.

Nánari upplýsingar veitir Steindór Guðmundsson löggiltur fasteignasali  s. 862 1996, [email protected]
"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"       
                                                                                                                
 Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.
1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð.
5. Skipulagsgjald leggst á allar nýbyggingar þegar komið er brunabótamat á eignina. Gjaldið er nú 0,3% af brunabótamati.

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.